Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 05. september 2020 16:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fabio Silva til Wolves á metfé (Staðfest)
Aðeins 18 ára.
Aðeins 18 ára.
Mynd: Getty Images
Wolves hefur gengið frá kaupum á portúgalska framherjanum Fabio Silva fyrir metfé hjá félaginu.

Wolves borgar 35 milljónir punda fyrir Silva sem kemur frá Porto.

Silva er aðeins 18 ára gamall. Hann er mjög efnilegur og skoraði þrisvar í átján leikjum með Porto á síðustu leiktíð. Hann er lykilmaður í yngri landsliðum Portúgala og hefur skorað 17 mörk í 37 leikjum.

Silva gerði góða hluti í Meistaradeild unglingaliða á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði fimm mörk og lagði upp fjögur í 9 leikjum.

Stjórnarformaður Wolves, Jeff Shi, segir að njósnarar félagsins hafi fylgst með Silva frá því hann var í U16 liði Porto. Nú eru hvorki meira né minna en tíu Portúgalar í leikmannahópi Wolves.

Áður en Wolves keypti Silva var Raul Jimenez dýrastur í sögu félagsins en hann kostaði 30 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner