05.09.21 - 19:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar gekk út eftir þrjár mínútur af öskrum - „Hef aldrei verið jafn reiður"

Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Menn skiljanlega ekki sáttir með gang mála.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson sat fyrir svörum á fréttamannafundi eftir leik Íslands og Norður-Makedóníu á Laugardalsvelli í dag.
Lokatölur urðu 2-2 en Ísland kom til baka á lokakaflanum eftir rúmlega klukkutíma þar sem frammistaðan var afskaplega döpur.

Lestu um leikinn: Ísland 2 - 2 Norður-Makedónía
Hvort vegur þyngra þessi lokakafli eða þessar fyrstu 65 mínútur?
„Eftir á að hyggja þarf maður alltaf að vera sáttur við stigið þegar þú spilar svona í 65-70 mínútur, við virðum stigið, það er ekki spurning um það," sagði Arnar.
„Ég er ekki bara stoltur af strákunum sem komu inn á, ég er líka stoltur af strákunum sem komu út af. Þetta var hópurinn sem skapaði þetta stig og við tökum það með okkur og byggjum á því. Við erum ekki að fara að leikgreina mikið þessar 65 mínútur. Þetta er rosalega mikilvægt stig andlega en við erum hundfúlir að hafa ekki getað unnið Norður-Makedóníu heima því að sigur, eins skrítið og það er, hefði haldið okkur inn í riðlinum."
Það vakti athygli að allir leikmenn hefðu farið inn í klefa í hálfleik og það var engin skipting í hálfleik. Hvað segiru við leikmennina og íhugaðiru ekki að gera breytingar í hálfleik?
Sjá einnig:
Óboðleg frammistaða hjá Íslandi - Enginn að hita upp
„Ég man ekki hvað ég sagði við strákana í hálfleik, ég öskraði svo mikið að ég missti röddina. Svo þremur mínútum seinna labbaði ég út og Eiður Smári tók við. Ég hef aldrei verið jafn reiður og ég lofaði sjálfum mér, þegar ég byrjaði sem þjálfari, að ég vildi ekki vera þjálfarinn sem væri að öskra á þá í hálfleik. Ég tapaði þeirri baráttu í dag," sagði Arnar.