Fotbolti.net
05.09.26 - 10:24
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal á eftir Raphinha - Chelsea bauðst að fá fyrrum leikmann Tottenham

Raphinha til Arsenal í janúar?

Raphinha til Arsenal í janúar?

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Chelsea bauðst að fá Malímanninn Yves Bissouma, Arsenal íhugar tilboð í Raphinha og erkifjendur sýndu leikmanni Wolves mikinn áhuga fyrir gluggalok. Þetta og margt fleira er í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Chelsea bauðst að fá Malímanninn Yves Bissouma (30), sem yfirgaf Tottenham í sumar, í stað Enzo Fernandez (25) sem gekk til liðs við Manchester City fyrir 125 milljónir punda. (Sun)

Man City og Chelsea eru meðal félaga sem sýndu enska miðjumanninum Adam Wharton (22) áhuga fyrir gluggalok en Crystal Palace hafnaði öllum fyrirspurnum. (Guardian)

Aston Villa, Man City og Newcastle hafa sýnt spænska vængmanninum Alex Baena (25) áhuga en Atlético Madríd vill ekki selja hann. (Caught Offside)

Til greina kom að Wolves seldi portúgalska U21-landsliðsmanninn Mateus Mane (18) fyrir gluggalok. Liverpool og Man City hafa mikinn áhuga á honum. (Teamtalk)

Arsenal íhugar að bjóða 68 milljónir punda í brasilíska vængmanninn Raphinha (29), leikmann Barcelona, í janúar. (Fichajes)

Tottenham íhugar að greiða upp samning brasilíska framherjans Richarlison (29) svo hann geti farið á frjálsri sölu. (Talksport)

Everton lagði fram munnlegt tilboð upp á 45 milljónir punda í Taty Castellanos (27), framherja West Ham, á lokadegi félagaskiptagluggans. Tilboðið barst hins vegar of seint til að Hamrarnir gætu samþykkt það. (Teamtalk)

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle, lagði mikla áherslu á að halda enska sóknarmanninum Jacob Murphy (31) hjá félaginu. Newcastle hafnaði því tveimur tilboðum frá Nottingham Forest í hann. (Football Insider)
Chelsea bauðst að fá Bissouma

Chelsea bauðst að fá Bissouma

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.