Fotbolti.net
05.09.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Heinze tékkaði á Lautaro fyrir Arsenal

Heinze tékkaði á Lautaro fyrir Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Arsenal reyndi hvað það gat að styrkja sóknina í sumar en félagið reyndi við leikmenn á borð við Morgan Rogers, Vinicius Junior og Julian Alvarez.

Gabriel Jesus, Leandro Trossard og Gabriel Martinelli yfirgáfu félagið en Arsenal nældi í Christos Tzolis frá Club Brugge.
Rogers endaði hjá Chelsea og Vinicius framlengdi við Real Madrid. Atletico Madrid var ekki á þeim buxunum að selja Alvarez og hann var áfram hjá félaginu.

Þegar það var ljóst að Alvarez yrði áfram gerði Arsenal tilraun að næla í Argentínumanninn Lautaro Martínez, framherja Inter. Daily Mail greinir frá því að Argentínumaðurinn Gabriel Heinze, aðstoðarþjálfari Arsenal, hafi hringt í landa sinn til að reyna sannfæra hann.

Inter vildi hins vegar alls ekki selja hann. Martínez hefur sjálfur greint frá því að Barcelona hafði mikinn áhuga á honum en Argentínumaðurinn vildi vera áfram í Mílanó.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.