Uppgjör umferðarinnar - Með flautu á KR-velli en piparúða í Kaplakrika

Stjarnan er Íslandsmeistari!

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Siggi Dúlla með fánann.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Bjarni Ben mætti á völlinn.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Stjarnan er Íslandsmeistari!

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Auðvelt val! Um 6.500 áhorfendur í Kaplakrikanum þar sem hreinn úrslitaleikur Íslandsmótsins fór fram. Leikurinn sjálfur var fullur af dramatík og umdeildum atvikum. Jafntefli hefði dugað FH en í uppbótartíma í stöðunni fékk Stjarnan réttilega vítaspyrnu og Ólafur Karl Finsen fór á punktinn og skoraði. Stjarnan Íslandsmeistari í fyrsta sinn (Staðfest).
Annars hugar umferðarinnar: Sigurður Óli Þórleifsson
Sigurður Óli aðstoðardómari hefur verið tengdur of mörgum umdeildum atvikum á tímabilinu. Það þarf þó ekkert að deila um það að fyrra mark Stjörnunnar og fyrsta mark leiksins í Krikanum átti aldrei að standa. Ólafur Karl Finsen var augljóslega rangstæður og með ólíkindum að reyndur aðstoðardómari eins og Sigurður Óli klikki á þessu.
Stáltaugar umferðarinnar: Ólafur Karl Finsen
Fyrir Ólaf Karl Finsen að taka vítaspyrnu sem ræður því hvort Stjarnan verði Íslandsmeistari eða ekki virtist vera eins og fyrir meðalmanninn að klæða sig í sokka. Auðvelt verkefni sem þarf að klára. Veljum þetta einnig mark umferðarinnar vegna mikilvægi þess.
Skrifað í skýin umferðarinnar: Sigur Stjörnunnar
Það hefur allt fallið með Garðabæjarliðinu í sumar, trekk í trekk. Það var eins og það væru bara örlögin að Stjarnan myndi standa uppi sem sigurvegari. Í stöðunni 1-1 í gær átti FH stangarskot og bláliðar björguðu naumlega á línu áður en Kristinn Jakobsson benti á punktinn.
Næstum skúrkur umferðarinnar: Veigar Páll Gunnarsson
Veigar fékk heimskulegt rautt spjald fyrir að slá Hólmar Örn Rúnarsson þegar Stjarnan leiddi 1-0. FH jafnaði skömmu síðar og hefði Veigar verið skúrkurinn hefði Garðabæjarliðið ekki staðið uppi sem sigurvegari. Kúdos á Veigar fyrir að sýna auðmýkt í viðtölum eftir leik og játa mistök sín.
Tryllingur umferðarinnar: Kassim The Dream
Kassim var réttilega dæmdur brotlegur þegar Stjarnan fékk vítaspyrnuna örlagaríku. Draumurinn breyttist í martröð og Kassim ætlaði að vaða í Kristinn Jakobsson dómara en fjölmarga þurfti til að halda honum frá því. Menn þurfa líka að kunna að tapa og það er eitthvað sem FH-ingar ættu að skoða eftir þennan leik, ekki bara Kassim.
Kveðja umferðarinnar: Kristinn Jakobsson
Einn besti dómari sem Ísland hefur átt dæmdi sinn síðasta leik í íslenska boltanum. Hefur á heildina átt mjög gott sumar. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur eins og íslenski fótboltinn gæti kynnst næsta sumar. Kristinn kvaddi með þeirri stóru ákvörðun að dæma vítaspyrnu í uppbótartíma. Hárréttur dómur eins og áður hefur komið fram í þessum uppgjörspakka.
Dómari og lögregla umferðarinnar: Örvar Sær Gíslason
Örvar hafði nóg að gera í gær! Hann dæmdi leik KR og Þórs og brunaði svo beint í Kaplakrika þar sem hann stimplaði sig inn á vakt sem lögreglumaður og gætti þess að það væru engin vandræði í stúkunni. Frá flautunni yfir í piparúða.
Ekki lið umferðarinnar:
Bjarni Þórður Halldórsson (Fylkir)
Ásgeir Eyþórsson (Fylkir) - Kassim Doumbia (FH) - Alan Lowing (Víkingur) - Ósvald Jarl Traustason (Fram)
Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur) - Oddur Ingi Guðmundsson (Fylkir) - Ian Jeffs (ÍBV) - Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
Ingimundur Níels Óskarsson (FH) - Jonathan Glenn (ÍBV)
Þjálfari umferðarinnar: Ágúst Gylfason, Fjölnir
Til hamingju Fjölnir! Grafarvogspiltar áttu á endanum skilið að halda sér og þeir enduðu sumarið á öruggum 3-0 sigri gegn ÍBV. Taflan lýgur ekki og Fjölnismenn voru betri en Fram í sumar.
Evrópustress umferðarinnar: Fylkir, Valur og Víkingur
Öll liðin sem voru að berjast um Evrópusæti voru léleg í sínum leikjum og töpuðu. Víkingar töpuðu 2-0 fyrir Keflavík og náði samt Evrópusætinu þrátt fyrir að hafa tapað fjórum síðustu leikjum tímabilsins og endað með neikvæða markatölu!
Sveifla umferðarinnar: Evrópusæti Fylkis
Fylkis stökk inn og út úr Evrópusæti í gær. Liðið var 3-2 yfir gegn Fram og manni fleiri en náði að klúðra því og tapa leiknum 4-3! Eitthvað sem maður hélt að gæti ekki gerst. Á endanum ótrúlegt klúður hjá Árbæingum að troða ekki sokkum í spekinga og tryggja sér farseðilinn til Evrópu!
Óvissa umferðarinnar: Þjálfarakapallinn
Það stefnir í þjálfarakapal í Pepsi-deildinni. Siggi Raggi er hættur þjálfun ÍBV. Gummi Ben ýjaði að því að hann láti af störfum. Maggi Gylfa virðist á förum. Samningur Heimis er útrunninn. Verður Ási áfram? Fer Rúnar Kristins til Noregs? Fylgist með!
Brot af umræðunni á Twitter #fotboltinet
Það fuku alveg góð 15 kg af Veigari Páli eftir markið hans Óla Kalla #InnMedBoltann #Stjarnan #fotboltinet
— Rúnar Gissurarson (@RnarGissurarson) October 4, 2014Gregg Ryder og Nemanija Vidic voru þeir einu sem unnu Stjörnuna á þessu tímabili #báðirTOPPmenn #Pepsi365 #fotboltinet
— Arnar Gauti Grettiss (@arnargauti7) October 4, 2014Gunnar nels vs kassim væri nettur bardagi #froðan #skapið #fotboltinet
— baldur sigmundsson (@baldursigmunds) October 4, 2014Hvað ætli myndi gerast ef Óli Kalli og Harpa Þorsteins myndu eignast barn saman? #fotboltinet
— Ólöf Ragnars (@olofragnars) October 4, 2014Þvílíkur dagur. Til hamingju Stjarnan og takk allir sem hlustuðu á Boltavaktina á @xid977 #fotboltinet
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) October 4, 2014Þessi lokaleikur verður aldrei toppaður (Staðfest). Hef aldrei orðið vitni að annarri eins spennu á Íslandi #fotboltinet
— Magnús Már Einarsson (@maggimar) October 4, 2014Ég er með gæsahúð yfir leiknum og ég er bara að hlusta á lýsinguna á X-inu og lesa texalýsingu #fotboltinet
— Bjarki Brynjarsson (@BjarkiBrynjars) October 4, 2014Veigar farðu að versla jólagjöf handa Kassim #fotboltinet #ótrúlegt
— Gunnar Njáll Gunnars (@Gunninj) October 4, 2014
Siggi Dúlla með fánann.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Bjarni Ben mætti á völlinn.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
