Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 05. október 2020 18:27
Ívan Guðjón Baldursson
La Liga staðfestir félagaskipti Partey til Arsenal
Partey hefur spilað 188 leiki fyrir Atletico Madrid.
Partey hefur spilað 188 leiki fyrir Atletico Madrid.
Mynd: Getty Images
Það voru frábærar fregnir að berast fyrir stuðningsmenn Arsenal þar sem La Liga er búið að staðfesta kaupin á miðjumanninum öfluga Thomas Partey.

Partey er þessa stundina í London þar sem hann gengst undir læknisskoðun og skrifar undir samning.

Arsenal þurfti ekki að kaupa Partey af Atletico þar sem hann er með söluákvæði sem hljóðar uppá 50 milljónir evra. Arsenal borgaði söluákvæðið og þurfti því aðeins að eiga samskipti við La Liga til að ganga frá skiptunum.

Partey, sem er lykilmaður í landsliði Gana, mun skrifa undir 5 ára samning við Arsenal og er talið að hann fái rúmlega 250 þúsund pund í vikulaun.

Lucas Torreira er búinn að standast læknisskoðun hjá Atletico og verður staðfestur sem nýr leikmaður félagsins von bráðar.
Athugasemdir
banner