Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mán 05. október 2020 11:07
Magnús Már Einarsson
Lovren svaraði stuðningsmönnum Liverpool
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Liverpool fóru mikinn á Twitter í gær eftir 7-2 tap liðsins gegn Aston Villa.

Liverpool seldi króatíska varnarmanninn Dejan Lovren til Zenit St Pétursborg í sumar en hann fylgist ennþá vel með gömlu félögunum.

Lovren kom sínum mönnum til varnar á Twitter eftir burstið á Villa Park í gær.

„Aldrei kenna einum eða tveimur leikmönnum um tap. Það eru 11 leikmenn á vellinum sem vinna eins og LIÐ. Stundum áttu góða eða slæma daga og á morgun er nýr dagur. Höldum áfram!" sagði Lovren.

Lovren svaraði einnig nokkrum stuðningsmönnum sérstaklega eins og sjá má hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner