Newcastle United er búið að staðfesta komu perúvska miðjumannsins Rodrigo Vilca til félagsins. Hann skrifar undir fjögurra ára samning.
Vilca er 21 árs og kemur frá Deportivo Municipal í heimalandinu. Hann er hugsaður sem framtíðarleikmaður og mun spila með varaliði Newcastle til að byrja með.
Vilca er sóknarsinnaður miðjumaður og skoraði 3 mörk og lagði 3 upp í 16 leikjum í efstu deild í Perú. Newcastle er talið greiða um 250 þúsund pund fyrir hann auk prósentu af næstu sölu.
🙌🇵🇪#NUFC
— Newcastle United FC (@NUFC) October 5, 2020
Athugasemdir