Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 05. október 2022 13:11
Elvar Geir Magnússon
Óliver og Sigurvin frá Gróttu til Fjölnis (Staðfest)
Lengjudeildin
Óliver Dagur Thorlacius.
Óliver Dagur Thorlacius.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Óliver Dagur Thorlacius og Sigurvin Reynisson hafa báðir yfirgefið Gróttu og farið í Fjölni í Lengjudeildinni. Þeir skrifuðu undir tveggja ára samning við Grafavogsliðið.

Grótta hafnaði í þriðja sæti Lengjudeildarinnar í sumar en Fjölnir í því fjórða. Óliver skoraði þrjú mörk í átján deildarleikjum í sumar en Sigurvin spilaði ekki í sumar.

Óliver er 23 ára miðjumaður sem spilað hefur með Gróttu frá tímabilinu 2018 en þar áður var hann á mála hjá KR þar sem hann er uppalinn. Óliver á að baki 136 KSÍ leiki og hefur skorað í þeim 27 mörk. Auk þess á hann átta leiki með yngri landsliðum Íslands.



Sigurvin sem er 27 ára varnarsinnaður miðjumaður er uppalinn hjá Fylki en hefur leikið með Gróttu síðan 2016. Á síðasta tímabili var Sigurvin frá vegna anna en mun snúa aftur á völlinn með Fjölni á komandi tímabili. Hann á að baki 177 leiki í meistaraflokki, þar af 16 í efstu deild.

„Það er mikið fagnaðarefni fyrir félagið að semja við þessa öflugu leikmenn sem eru frábær viðbót við hópinn. Knattspyrnudeild Fjölnis hlakkar til komandi tímabila saman og væntir mikils af samstarfinu," segir í tilkynningu Fjölnis.
Athugasemdir
banner
banner
banner