Fotbolti.net
05.11.13 - 20:30
Alexander Freyr Tamimi

O\'Neill og Roy Keane teknir við Írlandi (Staðfest)

Martin O\'Neill er tekinn við írska landsliðinu.

Martin O\'Neill er tekinn við írska landsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Írska knattspyrnusambandið hefur staðfest ráðninguna á Martin O\'Neill sem nýjum landsliðsþjálfara.
Honum til aðstoðar verður Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United og írska landsliðsins.

O\'Neill hefur verið án starfs síðan hann hætti með lið Sunderland fyrir nokkru, en hann tekur við landsliðinu af Giovanni Trappatoni.

Keane hefur ekki starfað við þjálfun síðan hann var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Ipswich árið 2011.

O\'Neill er frá Norður-Írlandi og höfðu fréttir af ráðningu hans valdið örlitlu fjarðafoki í Írlandi vegna þjóðernis hans. Athyglisvert verður að sjá hvort hann verði tekinn í sátt, en sú staðreynd að goðsögnin Keane er honum innan handar ætti að róa Íra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.