Fotbolti.net
05.11.13 - 11:12
Magnús Már Einarsson

Sindri Snær í Keflavík (Staðfest)

Sindri Snær í Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Víkurfréttir

Sindri Snær Magnússon hefur gengið til liðs við Keflavík en þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.

Hinn 21 árs gamli Sindri er uppalinn hjá ÍR en hann gekk til liðs við Breiðablik fyrir tveimur árum.

Síðastliðið sumar var Sindri í láni hjá Selfyssingum þar sem hann skoraði fjögur mörk í 22 leikjum.

Sindri á að baki landsleiki með undir 17, 19 og 21 ára liðum Íslands.
Sindri er fyrsti leikmaðurinn sem Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga fær til liðsins fyrir næsta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.