05.11.15 - 14:05
Magnús Már Einarsson
Ármann Smári áfram hjá ÍA (Staðfest)

Ármann Smári í baráttunni í leik í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ármann Smári Björnsson hefur ákveðið að taka slaginn áfram með Skagamönnum næsta sumar.
Ármann Smári hafði verið að íhuga sína framtíð en hann hefur nú ákveðið að leika áfram með ÍA. Það eru góð tíðindi fyrir Skagamenn en Ármann var í algjöru lykilhlutverki þegar ÍA endaði í 7. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Hann var í kjölfarið valinn leikmaður tímabilsins hjá ÍA.

„Við lögðum mikla áherslu á að framlengja samningin við hann,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari ÍA í samtali við Fótbolta.net í dag.
„Hann hefur staðið sig gríðarlega vel undanfarin tvö ár og sem fyrirliði hefur hann leitt fínan arangur með því að komast upp úr 1. deild í fyrra og enda tímabilið vel í ár.\"
„Hann hefur að mínu viti átt mjög fín tímabil og minnt á sig aftur. Hann og aðrir leikmenn í liðinu voru á mikilli uppleið undir lok tímabils og við vonum að hann mæti jafnsterkur til leiks á næsta tímabili.\"
Hinn 34 ára gamli Ármann Smári kom til ÍA árið 2012 eftir sex ára feril í atvinnumennsku erlendis. Ármann er uppalinn hjá Sindra en hann hefur einnig leikið með Val og FH á ferlinum.