Fotbolti.net
05.11.26 - 13:07
Elvar Geir Magnússon

Klósettferð eyðilagði næstum því kvöldið

Konstantinos Karetsas skorar sigurmarkið.

Konstantinos Karetsas skorar sigurmarkið.

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Hinn 18 ára gamli Konstantinos Karetsas var hetja Borussia Dortmund gegn Real Betis í Meistaradeildinni í gær en hann skoraði sigurmark þýska liðsins í 2-1 sigri.

Það munaði þó litlu að þessi stund yrði til því Grikkinn ungi fannst ekki þegar það átti að setja hann inn fyrir Serhou Guirassy í fyrri hálfleik.

Guirassy meiddist á læri og þurfti að fara af velli á 34. mínútu. Niko Kovac stjóri Dortmund ætlaði að setja Karetsas inn en þá var hann ekki á bekknum. Karetsas hafði brugðið sér inn á klefa til að nota salernið.
Meistaradeildin: Como skráði sig á spjöld sögunnar - Arsenal og Man City unnu
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Como skráði sig á spjöld sögunnar - Arsenal og Man City unnu

Rétt áður en Kovac ætlaði að setja Carney Chukwuemeka inn í staðinn þá kom hann auga á Karetsas.

„Hann var á klósettinu. Ef hann hefði ekki skilað sér naumlega til baka í tæka tíð hefði hann ekki komið inná," sagði Kovac eftir leik en Karetsas skoraði sigurmarkið á 72. mínútu.

Fyrr á þessu tímabili hneig Karetsas, sem er talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu, niður í leik gegn Villarreal og þurfti að fara í gegnum ítarlegar rannsóknir á sjúkrahúsi. Ekki var um mjög alvarlegt vandamál að ræða heldur blóðrásarvandamál.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.