Fotbolti.net
05.11.26 - 12:35
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Siggi Raggi fundaði með Fylki í vikunni

Sigurður Ragnar Eyjólfsson og vinur hans Gunnar Einarsson.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson og vinur hans Gunnar Einarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Sigurður Ragnar Eyjólfsson fór á fund með Fylki í vikunni en þetta kom fram í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að Færeyjameisturum nýlega en óvíst er hvort hann verði áfram með færeyska liðið. Hann hefur talað um að hugur sinn leiti aftur heim til Íslands.
Þjálfarakapallinn - Skiptar skoðanir í Kópavogi
TENGT EFNI

Þjálfarakapallinn - Skiptar skoðanir í Kópavogi

Fótbolti.net hafði greint frá því að Siggi Raggi kæmi til greina hjá Árbæingum en þeir eru í þjálfaraleit eftir að Heimir Guðjónsson tók við ÍA. Talað hefur verið um að Ólafur Ingi Skúlason sé efstur á blaði hjá uppeldisfélagi í Árbænum en hann var látinn fara frá Breiðabliki eftir tímabilið. Davíð Smári Lamude, Aron Baldvin Þórðarson og Borja Martin hafa einnig verið nefndir.

Fylkir fór í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á liðnu tímabili, þar sem liðið tapaði gegn Þrótti og verður því áfram í Lengjudeildinni á næsta ári.

Útvarpsþátturinn - Enginn í agabanni og lið fá einkunnir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.