Fotbolti.net
06.01.14 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Ian Holloway tekinn við Millwall (Staðfest)

Ian Holloway tekinn við Millwall (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ian Holloway er mættur aftur í boltann eftir stutt hlé en hann hefur verið ráðinn stjóri Millwall í ensku Championship deildinni.

Holloway leiddi Crystal Palace upp í ensku úrvalsdeildina síðastliðið vor en hann ákvað síðan að hætta með liðið í október eftir dapra byrjun.
Hinn fimmtugi Holloway hefur nú skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Millwall.

Holloway hefur áður stýrt Bristol Rovers, Queens Park Rangers, Plymouth Argyle, Leicester City og Blackpool.

Hann tekur við Millwall af Steve Lomas sem var rekinn á dögunum en liðið er í 21. sæti í Championship deildinni.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.