06.01.14 - 11:47
Magnús Már Einarsson
Paul McShane í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur fengið miðjumanninn Paul McShane í sínar raðir.
Paul skrifaði undir eins árs samning við Keflavík en hann lék einnig með félaginu árið 2010.

,,Það er gott að fá gamlan ref inn í kjúklingabúið til að hjálpa ungu strákunum,\" sagði Kristján Guðmundson þjálfari Keflavíkur við Fótbolta.net í dag.
Paul er 35 ára gamall en hann hefur leikið á Íslandi síðan árið 1998.
Paul hefur lengst af leikið með Grindavík en undanfarið eitt og hálft ár hefur hann verið á mála hjá Aftureldingu. Þá lék hann einnig með Fram 2008 og 2009.