Fotbolti.net
06.01.14 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Roger Johnson lánaður til West Ham (Staðfest)

Roger Johnson lánaður til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kenny Jackett, knattspyrnustjóri Wolves, segir að Roger Johnson hafi verið lánaður til West Ham United á láni.

Wolves spilar í þriðju efstu deild á Englandi en West Ham er í fallbaráttu þeirrar efstu.
Roger Johnson hefur reynslu af ensku fallbaráttunni, bæði í Úrvalsdeild og Championship, eftir veru sínu hjá Birmingham og Wolves.

James Collins, Winston Reid og James Tomkins eru meðal þeirra sem geta ekki spilað vegna ýmissa vandamála og því getur Johnson fyllt vel í skarðið til skamms tíma.

Johnson er búinn að leika með Championship liði Sheffield Wednesday í hálft ár á láni frá Úlfunum sem eru í toppbaráttu þriðju deildar.

,,Þetta er bara lánssamningur eins og er og upphæðin er árangurstengd. Það fer eftir því hversu marga leiki hann spilar og hvort liðinu gangi vel í þeim.

,,Þetta er virkilega gott tækifæri fyrir hann til að byggja á góðri vinnu sinni hjá Sheffield Wednesday.\"


Johnson gæti spilað sinn fyrsta leik strax á miðvikudaginn í undanúrslitum deildabikarsins gegn Manchester City.

West Ham er í 19. sæti Úrvalsdeildarinnar og er aðeins með einn sigur úr síðustu þrettán leikjum.
Roger Johnson lánaður til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.