06.01.16 - 15:15
Magnús Már Einarsson
Anna Evans og Jaclyn Poucel í ÍA (Staðfest)

ÍA fær liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

ÍA hefur samið við tvo bandaríska leikmenn fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í sumar en liðið komst aftur upp í efstu deild síðastliðið haust.
Leikmennirnir sem um ræðir eru Anna Evans og Jaclyn Poucel.

Anna Evans er 23 ára öflugur framherji sem lék með Colorado Rapids 2012-2014 en hún lék með Rävåsens IK í sænsku 1.deildinni síðasta sumar.
Jaclyn Poucel er 22 ára sterkur og vel spilandi varnarmaður sem lék með Chancellor Angels í USA á síðasta ári en þar á undann í háskólaboltanum með University of Pittsburgh.
„Við væntum mikils af þessum leikmönnum en báðar koma þær til landsins í mars og taka þátt í lokaundirbúningi liðsins fyrir Pepsideildina,\" segir á heimasíðu ÍA.