Fotbolti.net
06.01.16 - 17:31
Elvar Geir Magnússon

Grosskreutz til Stuttgart (Staðfest)

Grosskreutz til Stuttgart (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Stuttgart hefur gengið frá kaupum á Kevin Grosskreutz frá Galatasaray. Grosskreutz gekk í raðir Gala frá Borussia Dortmund í september en tyrknesku meistararnir gátu ekki skráð hann fyrr en í janúar eftir að hafa mistekist að ganga frá pappírsmálum fyrir lok tyrkneska gluggans.
Tyrkneska félagið áfrýjaði niðurstöðu FIFA en tapaði málinu og Grosskreutz snýr nú aftur í þýsku deildina án þess að hafa leikið einn einasta leik í Tyrklandi.

Grosskreutz hafði verið orðaður við Liverpool þar sem hans gamli þjálfari hjá Dortmund, Jurgen Klopp, ræður ríkjum.

En það reyndust aðeins sögusagnir því Grosskreutz er kominn til Stuttgart sem er í harðri fallbaráttu í þýsku deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.