06.01.16 - 14:14
Magnús Már Einarsson
Marko Grujic í Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur keypt miðjumanninn Marko Grujic frá Rauðu Stjörnunni í Belgrad.
Kaupverðið hljóðar upp á 5,1 milljón punda en Grujic mun leika áfram með Rauðu Stjörnunni á láni út tímabilið.
Grujic er 19 ára gamall en hann krotaði undir fjögurra ára samning hjá Liverpool.
Anderlecht, Stuttgart, CSKA Moskva og Zenit St Pétursborg vildu einnig krækja í Grujic en Liverpool hafði betur í baráttunni.
Grujic var í serbneska U20 ára landsliðinu sem vann HM í fyrra.