06.01.16 - 14:30
Elvar Geir Magnússon
Tottenham vann baráttuna um Tracey (Staðfest)


Mynd: Ebbsfleetunited.co.uk


Mynd: Ebbsfleetunited.co.uk
Tottenham vann samkeppni frá Stoke, Crystal Palace og West Ham um 17 ára miðjumann, Shilow Tracey.
Tracey kemur frá Ebbsfleet United í ensku utandeildinni en hann þykir mikið efni og hefur nú skrifað undir hjá Spurs.
Talið er að Tracey muni ekki fara beint í aðalliðið heldur æfa með jafnöldrum sínum til að byrja með svo stuðningsmenn Tottenham þurfa að bíða og sjá hvað spunnið er í strákinn.
Talið er að Tracey muni ekki fara beint í aðalliðið heldur æfa með jafnöldrum sínum til að byrja með svo stuðningsmenn Tottenham þurfa að bíða og sjá hvað spunnið er í strákinn.
