06.01.16 - 21:00
Arnar Geir Halldórsson
Younes Belhanda til Schalke (Staðfest)

Belhanda í landsleik með Marokkó

Mynd: Getty Images

Belhanda í landsleik með Marokkó

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarfélagið Schalke 04 hefur gengið frá samningum við Younes Belhanda.
Belhanda kemur til liðsins á láni frá Dynamo Kiev og er lánssamningurinn út þessa leiktíð en Belhanda 25 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður.
Þessi marokkóski landsliðsmaður hefur verið í lykilhlutverki hjá Dynamo Kiev frá árinu 2013.
„Mig hefur lengi dreymt um að spila í Bundesligunni. Ég þekki Schalke eftir að hafa spilað við þá í Meistaradeildinni. Þetta er stórt félag með mikla sögu, glæsilegan heimavöll og stuðningsmennirnir frábærir,\" sagði Belhanda við undirskriftina.
Schalke er í 6.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar en vetrarfrí er í gangi þar í landi núna.
Liðið hefur átt í erfiðleikum með að skora mörk í vetur og er Belhanda ætlað að lífga upp á sóknarleik liðsins.