Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 06. janúar 2020 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Everton sagt vilja selja Gylfa Þór
Mynd: Getty Images
Fjölmiðlar í Liverpool telja Carlo Ancelotti og stjórn Everton vera að skoða söluna á Gylfa Þór Sigurðssyni.

Gylfi Þór er þrítugur og hefur ekki staðið undir væntingum á leiktíðinni. Ancelotti vill breyta leikmannahópi Everton og þarf að selja nokkra leikmenn til að safna pening fyrir leikmannakaupum.

Liverpool Echo og Twitter aðgangurinn The Toffee Blues greina frá þessu og vitna miðlarnir í frétt frá Football Insider.

Everton hefur byrjaði á tveimur sigrum undir stjórn Ancelotti en er síðan búið að tapa fyrir Manchester City og Liverpool. Tapið gegn Liveropol var sérstaklega sárt þar sem nágrannarnir mættu til leiks með ungt varalið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner