Nágrannarnir Manchester United og Manchester City eigast við á Old Trafford í kvöld í undanúrslitum enska deildabikarsins.
Sigurvegari í leik kvöldsins mætir Tottenham í úrslitaleiknum á Wembley. Það er bara einn leikur í undanúrslitum en ekki tveir eins og venja er. Það má ekki við fleiri leikjum á þessu tímabili út af þéttu leikjaprógrammi vegna kórónuveirufaraldursins.
Sigurvegari í leik kvöldsins mætir Tottenham í úrslitaleiknum á Wembley. Það er bara einn leikur í undanúrslitum en ekki tveir eins og venja er. Það má ekki við fleiri leikjum á þessu tímabili út af þéttu leikjaprógrammi vegna kórónuveirufaraldursins.
Búið er að gefa út byrjunarliðin fyrir leik kvöldsins. Man Utd fékk lengri tíma til undirbúnings fyrir þennan leik og gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínum frá 2-1 sigrinum á Aston Villa. Man City spilaði síðast gegn Chelsea á sunnudag. Pep Guardiola gerir einnig tvær breytingar þrátt fyrir styttri undirbúning.
Hjá heimamönnum byrjar Dean Henderson í markinu og Victor Lindelöf kemur inn í hjarta varnarinnar í stað Eric Bailly, sem hefur spilað mjög vel að undanförnu.
Hjá City koma Fernandinho og Riyad Mahrez inn í byrjunarliðið fyrir Rodri og Bernardo Silva. Gabriel Jesus er klár í slaginn eftir að hafa jafnað sig á kórónuveirunni. Kyle Walker, Ederson og Ferran Torres, sem voru einnig greindir með veiruna, eru ekki með í kvöld.
Flautað verður til leiks klukkan 19:45 og er leikurinn sýndur í beinni á Stöð 2 Sport 2.
Byrjunarlið Man Utd: Henderson, Wan-Bissaka, Lindelof, Maguire, Shaw, Fred, McTominay, Pogba, Fernandes, Rashford, Martial.
(Varamenn: De Gea, Alex Telles, Bailly, Tuanzebe, James, Mata, Matic, Van de Beek, Greenwood)
Byrjunarlið Man City: Steffen, Cancelo, Stones, Dias, Zinchenko, Fernandinho, Gundogan, De Bruyne, Mahrez, Foden, Sterling
(Varamenn: Trafford, Walker, Jesus, Aguero, Rodrigo, Mendy, Nmecha, Harwood-Bellis, Mbete)
Athugasemdir