Thelma Karen skaut Hacken á toppinn

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Thelma Karen Pálmadóttir var hetja Hacken þegar liðið vann Uppsala 3-2 í sænsku deildinni í dag.
Staðan var 2-2 þegar Thelma kom inn á sem varamaður og hún skoraði sigurmarkið á 78. mínútu. Fanney Inga Birkisdóttir var í markinu hjá Hacken.

Hacken fór upp fyrir Hammarby á toppinn en Hammarby á leik til góða.
María Catharina Ólafsdóttir Gros var í byrjunarliði Djurgarden sem tapaði 4-1 gegn Rosengard í botnslag. Djurgarden er í 13. og næst neðsta sæti með átta stig en Rosengard er í 11. sæti með níu stg.
Heiða Ragney Viðarsdóttir spilaði allan leikinn þegar Eskilstuna tapaði 1-0 gegn AIK. Þá sat Sigdís Eva Bárðardóttir allan tímann á bekknum þegar Norrköping gerði 1-1 jafntefli gegn Vittsjö. Eskilstuna er í 5. sæti með 17 stig en Norrköping er í 12. sæti með níu stig.