06.01.21 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Karólína Lea skrifar undir hjá Bayern

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karolína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Breiðabliks, er á leið til þýska félagsins Bayern Munchen. Fótbolti.net greindi fyrst frá áhuga Bayern fyrir áramót.
<a href="https://www.mbl.is/sport/fotbolti/2021/01/06/skrifar_undir_i_thyskalandi_a_naestu_dogum/" target="_blank">Mbl.is greindi frá því í dag</a> að Karólína skrifi undir á næstu dögum og þá <a href="https://www.visir.is/g/20212057549d/bayern-festir-kaup-a-karolinu" target="_blank">staðfesti Vísir</a> að hún muni halda utan á morgun og skrifa undir þriggja og hálfs árs samning.

Bayern Munchen er á toppnum í þýsku úrvalsdeildinni en liðið hefur unnið alla tólf leiki sína á tímabilinu og er með markatöluna 40:1!
Núverandi meistarar í Wolfsburg eru fimm stigum á eftir Bayern í augnablikinu. Sveindís Jane Jónsdóttir gekk til liðs við Wolfsburg í gær en hún mun vera á láni hjá Kristianstad í Svíþjóð á næsta ári.
Hin 19 ára gamla Karólína varð Íslandsmeistari með Breiðabliki í sumar og kom inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins í undankeppni EM.
Karólína hefur skorað 32 mörk í 88 leikjum með Breiðabliki síðan hún kom til félagsins frá FH fyrir þremur árum.
Hún hefur á þeim tíma unnið tvo Íslandsmeistaratitla, bikarmeistaratitil og farið með liðinu í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.