Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 06. janúar 2022 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Everton bauð í Longstaff
Mynd: EPA
Sean Longstaff, miðjumaður Newcastle, gæti verið á förum frá félaginu í janúar.

Longstaff er 24 ára gamall og er eldri Longstaff bróðurinn, sá yngri - Matty, er á láni frá Newcastle hjá Aberdeen en gæti verið kallaður til baka í janúar.

Sky Sports greindi frá því í gærkvöldi að Everton hefði boðið í Sean en Newcastle hefði neitað tilboðinu - félagið vill halda miðjumanninum.

Rafa Benítez, stjóri Everton, þekkir vel til Sean þar sem hann var stjóri Newcastle fyrir ekki svo löngu síðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner