06.02.13 - 20:41
Hafliði Breiðfjörð
Iain Williamson í Val (Staðfest)

Iain Williamson kom til Vals sama kvöld og félagið rifti samningi við Guðjón Pétur Lýðsson en þeir eru báðir á myndinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tilkynnti rétt í þessu á vef sínum að félagið hafi gert samning við Skotann Iain James Williamson sem lék með Grindavík síðasta sumar og hafði æft með ÍA á reynslu á dögunum.
Samningurinn gildir út tímabilið 2013 og munu aðilar skoða möguleika á framlengingu að þeim tíma liðnum að því er segir á vef Vals.
Þar segir ennfremur að nokkur önnur lið voru á eftir Williamson en eftir að hafa leitað ráða hjá vini sínum Gregg Ross fyrrum leikmanni Vals ákvað hann að semja við Val. Barry Smith þjálfari Dundee og leikmaður Vals 2006-2008 mælti eindregið með þessum öfluga og sókndjarfa miðjumanni.
Williamson er 25 ára gamall og hefur leikið 111 leiki í skosku deildinni með Dunfermline og Raith Rovers.
Hann er miðjumaður en hann gekk til liðs við Grindavík á seinni hluta tímabilsins og spilaði 10 leiki og skoraði tvö mörk. Williamson kemur til landsins um miðjan febrúar og tekur þátt í undirbúningstímabilinu með Valsmönnum fyrir komandi keppnistímabil.
Fyrr í kvöld tilkynnti Valur að félagið hafi komist að samkomulagi við miðjumanninnn Guðjón Pétur Lýðsson um riftun samnings.

Heimild: Vefur Vals