06.02.13 - 21:46
Magnús Már Einarsson
Mads Rosenberg og Steinþór Már í KA (Staðfest)

Frá vinstri: Darren Lough sem samdi við KA í vetur, Steinþór Már Auðunsson, Mads Rosenberg, Brian Gilmour og Bjarni Jóhannsson þjálfari KA.

Mynd: Heimasíða KA

KA samdi í dag við danska varnarmanninn Mads Rosenberg en hann var til reynslu hjá félaginu í síðasta mánuði. Rosenberg er 26 ára gamall en hann getur leikið í hjarta varnarinnar, í bakverði og aftarlega á miðjunnni. Hann kemur frá Árósum en hefur síðasta hálft annað ár spilað með 1. deildarliði FC Hjörring.
,,Ég kem til KA fyrst og fremst til þess að prófa eitthvað nýtt í fótboltanum. Ég spilaði með Hjörring fram í nóvember á liðnu ári, en hafði áhuga á því að prófa eitthvað nýtt,\" sagði Rosenberg við heimasíðu KA.
,,Þegar mér síðan bauðst að koma til KA á reynslu í janúar ákvað ég að slá til og það er mér ánægjuefni að hafa samið við félagið. Ég er ánægður með það sem ég hef þegar upplifað.\"
,,Allir í klúbbnum hafa tekið mér vel og mér finnst vel staðið að öllu í kringum hann. Ég mun leggja mig fram og vonandi fæ ég tækifæri til þess að spila mikið fyrir KA á næstu átta mánuðum.\"
Markvöðurinn Steinþór Már Auðunsson samdi einnig við KA í dag. Steinþór er uppalinn í KA og spilaði með félaginu upp alla yngri flokka. Að loknum 2. flokki lá leið hans til Völsungs á Húsavík, þar sem hann spilaði í hálft annað ár.
Hann skipti yfir í Dalvík um mitt sumar 2011 og síðastliðið sumar stóð hann sömuleiðis milli stanganna í marki Dalvíkinga.
,,Mér finnst vera spennandi tímar framundan í KA og það er ekki verra að finna að þjálfararnir hafa trú á manni. Mér líst mjög vel á það sem er að verið að gera núna hjá félaginu og ég hlakka til þess að takast á við verkefnin framundan,\" sagði Steinþór á heimasíðu KA.
Skoski miðjumaðurinn Brian Gilmour framlengdi einnig samning sinn við KA í dag. Hann kom fyrst til KA í júlí 2011 og spilaði þá með liðinu út keppnistímabilið. Hann spilaði síðan aftur með KA síðastliðið sumar og var í lykilhlutverki.

Heimild: Heimasíða KA