Fotbolti.net
06.02.13 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Malesani tekinn við Palermo (Staðfest)

Malesani tekinn við Palermo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alberto Malesani hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Palermo á Ítalíu og er þar með 25. þjálfari liðsins á síðastliðnum 10 árum.

Malesani var ráðinn á þriðjudaginn en Gian Perio Gasperini var rekinn úr þjálfarastöðunni á mánudaginn.
Palermo er á botni ítölsku A-deildarinnar, fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni, en Malesani segist ekki getað lofað því að Palermo bjargi sér frá falli.

,,Það er úr erfiðustu stöðunum sem helstu framfarirnar eiga sér stað,\" sagði Malesani við fréttamenn.

,,Ég er með starf hjá frábæru félagi og þjálfaratilboðið var eitthvað sem ég hafði mikinn áhuga um leið og það birtist.

,,Ég veit að þetta er gott lið sem þarf að finna samstöðu og það verður verðugt verkefni að koma öllum á sömu blaðsíðu.

,,Ég ætla ekki að lofa neinu, en ég mun gera mitt besta til að bjarga Palermo frá falli. Við verðum að ímynda okkur að allt endurræsist og að tímabilið sé byrjað upp á nýtt þegar við mætum Pescara á sunnudaginn.

,,Ekkert verður ákveðið fyrr en í lokaumferðinni og við verðum að reyna að enda fyrir ofan fallsvæðið.\"

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.