Fotbolti.net
06.02.14 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Brynja Dögg gengur til liðs við Aftureldingu (Staðfest)

Brynja ásamt John Andrews þjálfara Aftureldingar.

Brynja ásamt John Andrews þjálfara Aftureldingar.

Canon

Mynd: Aðsend

Kvennaboltinn
Kvennalið Aftureldingar er í óðaönn að styrkja lið sitt fyrir átök sumarsins og hefur gert tveggja ára samning við Brynju Dögg Sigurpálsdóttur sem kemur frá Þór/KA.
Brynja er 21.árs gömul og hefur leikið með Þór/KA frá upphafi en hún er uppalin hjá Þór á Akureyri. Hún lék þó nokkra leiki með Fram í 1.deildinni í fyrra þar sem hún var á láni.

Brynja Dögg er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið bæði í vörn og á miðju og mun án efa styrkja lið Aftureldingar fyrir komandi tímabil í Pepsideildinni í knattspyrnu.

Aftureldingar liðið stefnir á að styrkja lið sitt enn fremur fyrir komandi átök í Pepsí-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.