Fotbolti.net
06.02.14 - 11:41
Magnús Már Einarsson

Erlingur Jack ráðinn aðstoðarþjálfari Þróttar (Staðfest)

Erlingur Jack ráðinn aðstoðarþjálfari Þróttar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erlingur Jack Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar en þetta kemur fram á 433.is í dag.

Hann mun vera aðstoðarmaður Gregg Ryder sem tók við Þrótti síðastliðið haust.

Gregg er einn yngsti ef ekki yngsti þjálfarinn í 1. deild frá upphafi en hann er 25 ára gamall. Hann hefur undanfarin ár þjálfað hjá ÍBV og var aðstoðarþjálfari liðsins í fyrra.
Erlingur Jack er 32 ára gamall en hann hefur lengst af á ferli sínum leikið með Þrótti.

Erlingur lék síðari hluta síðasta tímabils með Gróttu eftir að hafa hætt hjá Þrótti um mitt sumar í kjölfar þess að Páli Einarssyni var sagt upp störfum. Erlingur reiknar ekki með að spila með Þrótturum í sumar.

,,Ég efast um að ég spili, ég mun æfa með þeim. Ég ætla að stíga til hliðar og leyfa öðrum að njóta þess að spila,\" sagði Erlingur við 433.is.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.