Fotbolti.net
06.02.14 - 19:00
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Pato til Sao Paulo í skiptum (Staðfest)

Pato til Sao Paulo í skiptum (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Corinthians hefur sent framherjann Alexandre Pato til Sao Paulo í skiptum fyrir miðjumanninn Jadson.

Stuðningsmenn Corinthians ruddust inn á æfingu liðsins í vikunni og létu Pato og fleiri leikmenn heyra það fyrir lélega frammistöðu.

Hinn 24 ára gamli Pato sagðist vera óöruggur í kjölfarið og óskaði eftir að fara.
Pato var eitt sinn talinn vera mikið efni en hann spilaði með AC Milan í nokkur ár áður en hann fór til Corinthians á 15 milljónir evra í fyrra.

Pato hefur skorað 10 mörk í 27 leikjum með brasilíska landsliðinu en hann hefur ekki náð að vinna sér inn fast sæti þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.