06.02.14 - 19:22
Elvar Geir Magnússon
Stefán Ragnar í Fylki (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkismenn hafa fengið varnarmanninn Stefán Ragnar Guðlaugsson til liðs við sig frá Val.
Stefán Ragnar skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í kvöld en þetta kemur fram á fylkismenn.is.

Stefán Ragnar er uppalinn Selfyssingur en hann gekk til liðs við Val fyrir síðasta tímabil og spilaði þá ellefu leiki.
Stefán Ragnar verður 23 ára í næsta mánuði en hann lék á sínum tíma bæði með U17 og U19 ára landsliði Íslands.
Fylkismenn hafa verið í leit að miðverði en Sverrir Garðarsson er horfinn á braut og óvíst er hvort Kristján Hauksson muni leika með liðinu í sumar vegna anna í námi.

Heimild: Fylkismenn.is