06.02.22 - 21:35
Ívan Guðjón Baldursson
Hólmbert Aron lánaður til Lilleström (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lilleström og Holsten Kiel hafa staðfest samkomulag sín á milli um að lána Hólmbert Aron Friðjónsson í norska boltann út tímabilið.
Hólmbert Aron gekk í raðir Kiel síðasta sumar en hefur glímt við erfið meiðsli undanfarna mánuði.
Hann er búinn að jafna sig en þarf tíma til að koma sér í fullkomið stand og því tilvalið fyrir hann að halda á kunnugar slóðir.
Hólmbert gerði garðinn frægan í norska boltanum þegar hann raðaði inn mörkunum með Álasundi og var að lokum seldur til Brescia á Ítalíu.
Það verður áhugavert að fylgjast með Hólmberti hjá Lilleström sem endaði í fjórða sæti norsku deildarinnar í fyrra.