06.02.22 - 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
Overmars hættur (Staðfest) - Áreitti kvenkyns starfsmenn

Overmars gerði garðinn frægan sem leikmaður hjá Ajax, Arsenal og Barcelona á sínum tíma auk þess að vera lykilmaður í hollenska landsliðinu.

Mynd: EPA

Marc Overmars er ekki lengur yfirmaður knattspyrnumála hjá Ajax eftir að upp komst um áreiti af hans hálfu gagnvart kvenkyns samstarfsmönnum hjá knattspyrnufélaginu.
Overmars sendi samstarfskonum sínum óviðeigandi skilaboð yfir margra mánaða tímabil og ákváðu konurnar að fara með málið lengra þegar þeim var nóg boðið.
„Ég skammast mín fyrir eigin hegðun. Í síðustu viku var ég látinn vita af því hvernig mín hegðun hefði áhrif á aðra. Því miður tók ég ekki eftir því þegar ég fór yfir persónuleg mörk hjá samstarfsfólki mínu en eftir að mér var gert það ljóst fann ég fyrir miklum þunga leggjast yfir mig," sagði Overmars.
„Svona hegðun er óafsakanleg fyrir mann í minni stöðu og ég vil biðjast afsökunar. Ég sé núna að ég gerði mistök en það er of seint, það er ekkert í stöðunni fyrir mig annað en að segja af mér.
„Þetta mál hefur haft mikil áhrif á mitt einkalíf og ég vil biðja alla um að láta mig og fjölskyldu mína í friði."
Overmars hefur verið yfirmaður hjá Ajax í rétt tæpan áratug og var nýlega búinn að skrifa undir nýjan samning til 2026.