Fotbolti.net
06.02.22 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Viktoría Valdís í Hauka (Staðfest)

Viktoría Valdís í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Hulda Margrét / Haukar

Kvennaboltinn
Knattspyrnudeild Hauka hefur staðfest komu Viktoríu Valdísar Guðrúnardóttur á tveggja ára samningi til félagsins.
Viktoría Valdís er fædd 1995 og á yfir 150 keppnisleiki að baki fyrir FH og Stjörnuna.

Viktoría spilaði síðast 18 leiki með Stjörnunni í Pepsi Max-deildinni sumarið 2019 en varð ólétt og hefur ekki keppt síðan.

Ljóst er að Viktoría getur orðið mikill liðsstyrkur fyrir ungt og efnilegt lið Hauka í Lengjudeildinni í sumar.

„Knattspyrnufélagið Haukar býður Viktoríu innilega velkomna í félagið," segir í færslu á Facebook síðu Hauka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.