Fotbolti.net
06.03.13 - 17:56
Magnús Már Einarsson

Brynjar Björn í KR (Staðfest)

Brynjar Björn er kominn heim.

Brynjar Björn er kominn heim.

Canon

Mynd: Getty Images

Brynjar Björn Gunnarsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt KR en hann hefur náð samkomulagi um tveggja ára samning við félagið. Þetta staðfesti Baldur Stefánsson varaformaður knattspyrnudeildar KR í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
,,Við erum mjög ánægðir með að fá hann heim. Hann er búinn að eiga langan og góðan feril úti og það er alltaf gaman að fá góða gegna KR-inga aftur í klúbbinn,\" sagði Baldur við Fótbolta.net nú síðdegis.

Brynjar Björn fékk sig lausan undan samningi hjá Reading í síðustu viku og í kjölfarið lá fyrir að hann myndi ganga í raðir KR.

Brynjar, sem er 37 ára gamall, hefur verið í atvinnumennskunni undanfarin sextán ár, en hann hefur verið hjá Reading frá árinu 2005 þar sem hann lék 163 leiki og skoraði tíu mörk á tíma sínum þar.

Þá lék Brynjar einnig með Stoke, Nottingham Forest, Watford, Örgryte, Valerenga og Moss á atvinnumannaferli sínum erlendis.

Brynjar er í stuttu fríi fram í næstu viku og verður ekki með KR gegn Leikni R. í Lengjubikarnum á föstudag en hann ætti að hefja leik með liðinu eftir það.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.