06.03.13 - 12:25
Magnús Már Einarsson
Króatískur miðjumaður í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Selfyssingar hafa samið við króatíska miðjumanninn Luka Jagacic.
Luka hefur æft með Selfyssingum að undanförnu og nú er ljóst að þessi 22 ára gamli leikmaður mun spila með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.

Luka var síðast á mála hjá Gorica í króatísku fyrstu deildinni en þar áður lék hann með NK Varazdin í úrvalsdeildinni í Króatíu.
Árið 2009 var Luka boðið að koma til Manchester City á reynslu en hann hefur leikið fjölmarga leiki með yngri landsliðum Króata.
Miklar breytingar eru á leikmannahópi Selfyssinga síðan í fyrra en 19 leikmenn eru horfnir á braut og ellefu aðrir komnir í þeirra stað.