Fotbolti.net
06.03.13 - 10:49
Hafliði Breiðfjörð

Mateja Zver aftur í Þór/KA - Annis og Grimsley áfram (Staðfest)

Mateja Zver kemur aftur til Akureyrar í sumar.

Mateja Zver kemur aftur til Akureyrar í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kvennaboltinn
Íslandsmeistarar Þór/KA hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Pepsi-deild kvenna því Mateja Zver snýr aftur til liðsins í apríl og spilar með þeim í sumar.

Þá hefur félagið staðfest að Kayla Grimsley og Tahnai Annis leika áfram með liðinu í sumar.
Mateja Zver var frábær með liðið Þór/KA þegar hún lék síðast með liðinu frá 2008-2011 og skoraði 56 mörk í 67 leikjum. Hún kemur til landsins 26. apríl næstkomandi. Hún er frá Slóveníu.

Þær Kayla Grímsley og Tahnai Annis léku báðar stór hlutverk í liði Þórs/KA þær léku hvor um sig 21 leik með liðinu 2012 bæði í deild og bikar. Kayla skoraði 5 mörk í þeim leikjum en Tahnai Annis 9.

Þór/KA hefur verið að ganga frá leikmannamálum sínum fyrir komandi sumar og félagið gerði á dögunum nýja samninga við Katrínu Ásbjörnsdóttur og Söndru Maríu Jessen um að leika áfram með liðinu.

Þá samdi varnarmaðurinn Silvía Rán Sigurðardóttir við félagið en hún missti af síðustu leiktíð vegna meiðsla og Hulda Ósk Jónsdóttir er komin til liðs við þær frá Völsungi.

Heimild: Vefur Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.