Fotbolti.net
06.03.14 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Elinbergur tekur við Grundarfirði (Staðfest)

Elinbergur tekur við Grundarfirði (Staðfest)
Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Elinbergur Sveinsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Grundarfirði í þriðju deildinni.
Elinbergur þekkir vel til á Snæfellsnesi en hann var á sínum tíma fyrirliði Víkings frá Ólafsvík. Þá lék Elinbergur með Grundfirðingum árin 2010 og 2012 en í fyrra og árið 2011 var hann í liði Kára á Akranesi.

,,Við bjóðum þennan fjallmyndarlega pilt velkominn til starfa,\" segir á heimasíðu Grundarfjarðar.

Elinbergur tekur við Grundarfirði af Aleksandar Linta sem stýrði liðinu í 3. deildinni í fyrra.

Grundfirðingar eru að setja meiri kraft í undirbúning sinn fyrir sumarið en liðið mætir Sörvög frá Færeyjum í æfingaleik í Akraneshöllinni á föstudagskvöld.
Elinbergur í leik með Kára á móti Grundarfirði.

Elinbergur í leik með Kára á móti Grundarfirði.

Canon

Mynd: Grundarfjörður

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.