06.03.14 - 15:30
Hafliði Breiðfjörð
Margrét María til liðs við KR (Staðfest)

Margrét María fagnar sigri í 1. deild kvenna með Þrótti sumarið 2012.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Margrét María Hólmarsdóttir er gengin í raðir KR en hún kemur til félagsins frá Þrótti.
Margrét María hefur æft með Breiðabliki í vetur og spilað æfingaleiki en ákvað að ganga til liðs við KR.
Hún er 27 ára gömul og efur spilað með Þrótti þar sem hún hefur spilað síðan árið 2009. Hún lék fyrir þann tíma með Fjölni og Ægi úr Þorlákshöfn.
Margrét María hefur skorað 73 mörk í 118 leikjum í deild og bikar hér á landi. Hún var markahæst í 1. deild árið 2009 með 20 mörk í 12 leikjum og árið 2012 með 17 mörk í 17 leikjum.

Heimild: KR.is