06.03.14 - 22:31
Alexander Freyr Tamimi
Stefán Logi í KR (Staðfest)

Stefán Logi er kominn aftur í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Logi er kominn aftur í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Logi Magnússon er formlega genginn í raðir KR, en félagaskipti hans hafa verið staðfest á heimasíðu KSÍ.
Stefán Logi er markvörður og hefur spilað erlendis frá því að hann yfirgaf KR árið 2009.
KR hefur misst þá Hannes Þór Halldórsson og Rúnar Alex Rúnarsson í atvinnumennskuna og er Stefán Logi því mikill liðsstyrkur fyrir Íslandsmeistarana.
Það hefur legið fyrir í þónokkurn tíma að Stefán Logi, sem á 10 A-landsleiki að baki, myndi snúa aftur í Vesturbæinn og er það nú staðfest.
Stefán Logi er löglegur í leik KR gegn Aftureldingu á laugardag.