Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 06. mars 2020 17:30
Elvar Geir Magnússon
Hazard fór í vel heppnaða aðgerð
Eden Hazard.
Eden Hazard.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard, leikmaður Real Madrid, hefur gengist undir vel heppnaða aðgerð á ökkla.

Hazard ökklabrotnaði í tapleik Real gegn Levante þann 23. febrúar en það var aðeins annar byrjunarliðsleikur hans eftir að hafa verið frá í þrjá mánuði vegna meiðsla á sama fæti.

Síðan Hazard gekk í raðir Real Madrid frá Chelsea síðasta sumar hafa meiðsli leikið hann grátt og hann hefur aðeins náð að spila fimmtán leiki í öllum keppnum.

Real Madrid vonast til að Belginn geti náð síðustu leikjum tímabilsins í vor en Madrídarliðið er í toppsæti La Liga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner