Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. mars 2021 17:40
Victor Pálsson
Koeman kominn með upp í kok af sömu spurningunni
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Barcelona, er orðinn fullsaddur á því að fá spurningar um eigin framtíð hjá félaginu.

Koeman er sagður vera valtur í sessi eftir brösugt gengi á tímabilinu og er Xavi, fyrrum miðjumaður liðsins, orðaður við starfið.

Fyrir leik gegn Osasuna í kvöld var Koeman enn og aftur spurður út í framtíð sína og er augljóst að hann sé orðinn þreyttur á sömu spurningunum.

„Fólk og fjölmiðlarnir hafa áhuga á því að nefna nöfn og búa til umdeilanleg málefni," sagði Koeman.

„Það mikilvægasta fyrir mig er að pirra mig ekki á því og undirbúa liðið fyrir leikinn sem er framundan. Ég pirrar mig ekki og ég hef engan áhuga á þegar nöfn eins og Xavi eru nefnd."

„Loksins þá verður nýr forseti kosinn um helgina og hann tekur ákvarðanir. Við munum ræða saman. Ég er kominn með upp í kok af þessum spurningum og það hefur verið svoleiðis í dágóðan tíma."
Athugasemdir
banner
banner
banner