06.03.22 - 21:03
Brynjar Ingi Erluson
Fylkir að fá framherja frá Árósum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnudeild Fylkis er ganga frá samningum við Mathias Laursen, framherja Aarhus Fremad, en hann segir sjálfur frá þessu í viðtali við heimasíðu danska félagsins.
Laursen er 24 ára gamall og hefur spilað síðustu þrjú ár með Aarhus Fremad sem leikur í dönsku C-deildinni.
Hann skoraði 26 mörk í 75 leikjum með félaginu en er nú á leið til Íslands og mun ganga í raðir Fylkis í Lengjudeildinni.
„Ég fór þangað og æfði með félaginu í tíu daga og þetta var góð upplifun fyrir mig. Þetta er mjög ungt og vel spilandi lið. Allt í allt var þetta mjög jákvæð upplifun."
„Ég er 24 ára og mér finnst eins og núna sé tíminn til að prufa eitthvað nýtt og halda erlendis. Þetta verður geggjuð upplifun," sagði Laursen við heimasíðu Fremad.