Fotbolti.net
06.03.22 - 18:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gunnar Heiðar tekinn við Vestra (Staðfest)

Bikarmeistari með ÍBV árið 2017

Bikarmeistari með ÍBV árið 2017

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur verið ráðinn næsti þjàlfari Vestra. Frá þessu er greint á heimasíðu Vestra.

„Stjórn Vestra lýsir yfir mikilli ánægju með ráðninguna og telur að Gunnar sé einmitt sá karakter sem félaginu vantar og var í leit að," segir á heimasíðunni.
„Stjórn Vestra sendir þakkir til KFS fyrir að leyfa Gunnari að taka við þessu starfi. Gunnar Heiðar sem er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu, er 39 ára og kemur frá Vestmannaeyjum."

Á síðasta ári þjálfaði hann lið KFS í þriðju deildinni og náði góðum árangri. Gunnar er 39 ára gamall og tekur við sem þjálfari af Jóni Þór Haukssyni sem var ráðinn til ÍA í lok janúar.

Heimild: Vestri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.