06.03.22 - 21:29
Brynjar Ingi Erluson
Tiffany Sornpao í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Alberto A. Larrea

Mynd: Alberto A. Larrea

Knattspyrnudeild Selfoss hefur gengið frá samkomulagi við markvörðinn Tiffany Sornpao en hún kemur til félagsins frá Keflavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Tiffany, sem verður 24 ára á þessu ári, spilaði með Keflavík á síðasta tímabili og var valin í úrvalslið Pepsi Max-deildarinnar.
Hún er fæddi í Bandaríkjunum og spilaði í bandaríska háskólaboltanum áður en hún kom til Íslands. Hún er einnig ættuð frá Taílandi og sex A-landsleiki fyrir taílenska landsliðið.
„Ég er rosalega ánægður með að fá Tiffany til liðs við okkur. Hún sýndi það í deildinni í fyrra að hún er góður markmaður og miðað við allt sem ég hef skoðað og eftir að hafa fylgst með henni spila á Asíuleikunum í síðasta mánuði þá er hún líka býsna örugg í fótunum. Það mun henta okkur vel ef við ætlum að halda áfram að reyna að spila þann fótbolta sem við viljum spila."
„Hún er líka flottur karakter með leiðtogahæfileika, þrátt fyrir ungan aldur," segir Björn Sigurbjörnsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss.