06.04.13 - 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Harry Kewell kominn til liðs í Katar (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Harry Kewell, fyrrverandi leikmaður Leeds United, Liverpool og Galatasaray, er kominn til katarska félagsins Al Gharafa.
Þessi fyrrum landsliðsmaður Ástralíu skrifaði undir skammtímasamning og greinir frá þessu á opinberri vefsíðu félagsins.
Þessi fyrrum landsliðsmaður Ástralíu skrifaði undir skammtímasamning og greinir frá þessu á opinberri vefsíðu félagsins.
Kewell, sem er 34 ára, lék síðast með Melbourne Victory í heimalandinu en þurfti að yfirgefa félagið vegna fjölskyldumála.
Margir bjuggust við því að Kewell myndi snúa aftur til Ástralíu eða Englands en ekki fara eins og raun ber vitni til Katar.
Margir bjuggust við því að Kewell myndi snúa aftur til Ástralíu eða Englands en ekki fara eins og raun ber vitni til Katar.
Heimild: Sky Sports
