06.04.14 - 23:00
Elvar Geir Magnússon
Nicolas Anelka til Atletico Mineiro (Staðfest)

Anelka er kominn í nýtt lið.

Mynd: Getty Images

Anelka er kominn í nýtt lið.

Mynd: Getty Images
Forseti brasilíska félagsins Atletico Mineiro tilkynnti það í dag að franski sóknarmaðurinn Nicolas Anelka væri orðinn leikmaður félagsins.
Anelka er 35 ára og hefur verið án félags síðan hann var rekinn frá West Brom í síðasta mánuði.
Atletico vann Libertadores keppnina í fyrsta sinn á síðasta ári en það er nokkurskonar Meistaradeild Suður-Ameríku.
Hinn víðförli Anelka verður samherji Ronaldinho hjá Atletico Mineiro. Áður hefur Anelka leikið með PSG í Frakklandi, Real Madrid á Spáni, Fenerbahce í Tyrklandi, Juventus á Ítalíu, Shanghai Shenhua í Kína og sex liðum á Englandi.